3. Íslistasafn í Grindavík
Nefndin fannst hugmyndin áhugaverð og vill skoða þetta nánar.
4. Önnur mál
- Rætt var um að ýmsa möguleika sem fólust í þeim hugmyndum sem komu á borð
nefndarinnar og hvort hægt væri að tengja þetta eitthvað saman við þá sögu sem
að Grindavík býr yfir, eins og t.d. Tyrkjaránið eða björgunarsveitina. Nefndin
er sammála um að það væri kláralega góð hugmynd að setja upp einhvern segul sem
að fengi ferðamanninn til að koma við í Grindavík þegar hann heimsækir t.d.
Bláa lónið og komu margar hugmyndir upp í þeim umræðum. Nefndin mun vinna þetta
samhliða þessum hugmyndum sem voru kynnt á fundinum og skoða þá möguleika sem
eru í stöðinni með það að leiðarljósi að auka ferðmannastrauminn til Grindavíkur.
- Nefndin vill skoða með að heimsækja fyrirtæki í bænum og einnig ferðamannastaði
til að geta gert sér betur grein fyrir þeirri starfssemi sem er í bænum. Það er
mikilvægt að nefndin sé meðvituð um hvað fyrirtækin í bænum eru að gera og einnig
hvaða tækifæri gætu legið hjá þeim í að auka á atvinnu- og ferðamál í Grindavik.
Nánari útlistun á framkvæmd þessar hugmyndar verður kláruð á næsta fundi.
- Nefndin telur mikilvægt að allar þær hugmyndir sem gætu aukið á atvinnu- eða
ferðamál í Grindavík sé vert að skoða.
- Nefndin telur að það þurfi að bjóða til Grindavíkur þeim aðilum sem að styrkja
frumkvöðlastarfssemi og sýna þeim þá möguleika sem að svæðið býður upp á. Nefndin
mun skoða þetta betur með þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem gætu haft áhuga
á að kynna sínar hugmyndir fyrir þessum aðilum með það að markmiði að sækja styrki
og fjárfesta til að gera þessar hugmyndir að veruleika.
Mættir voru á fundinn.
Jakob Sigurðsson
Jovana Lilja Stefánsdóttir
Sigurður A. Kristmundsson
Pétur Breiðfjörð
Pétur R. Guðmundsson