495. fundur
Skipulags- og byggingarnefndar Grindavíkur
haldinn á skrifstofa byggingarfulltrúa,
þriðjudaginn 13. janúar 2009 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Sigurður Ágústsson, Pétur Breiðfjörð Reynisson, Ólafur Guðbjartsson, Unnar Á
Magnússon og Hörður Guðbrandsson. Einnig sat fundinn Sigmar B. Árnason byggingafulltrúi
Fundargerð ritaði: Ingvar Þ. Gunnlaugsson , Forstöðumaður Tæknideildar
Formaður nefndarinnar óskar eftir því að taka eftirfarandi inn með afbrigði:
0809023 - Deiliskipulagsbreyting í Svartsengi
Dagskrá:
1.0901023 - Fyrirspurn vegna breytinga á útliti á Vesturbraut 10
Guðmundur Grétar Karlsson og Sigurður Rúnar Karlsson óska eftir umsögn varðandi útlitsbreytingu Vesturbrautar 10 sbr. skjal dags 08.01.2009 í
Nefndin tekur jákvætt í erindið, en bendir á að leita til byggingafulltrúa varðandi breytingar á húsinu.
2.0901011 - Ósk um umsögn vegna breytingu á Víkurbraut 26 í Gistiheimili
Novos Fasteignafélag ehf kt: 430806-1060 óskar eftir umsögn á þessum frumdrögum af breitingu Víkurbraut 26 í gistiheimili. Einnig óskar Novos eftir því að fá að byggja annað svipað hús á lóðinni
Nefndin tekur jákvætt í erindið, en bendir á að leita til byggingafulltrúa varðandi
breytingar á húsinu.
Sigurður Ágústsson vék af fundi
3.0901015 - Óska eftir umsögn að tillögu fyrir stækkun.
Magnús Eiríkur Arthúrsson óskar eftir umsögn að tillögu fyrir stækkun á Borgarhrauni 2. Sjá teikningar frá VSS dags. 12.12.08.
Nefndin tekur jákvætt í erindi.
4.0901016 - Óska eftir umsögn að tillögu fyrir stækkun á húsnæði.
Hörður Styrmir Jóhannsson óskar eftir umsögn að tillögu fyrir stækkun á Norðurvör 3. Sjá teikningar frá VSS dags. 17.12.08
Nefndin tekur jákvætt í erindið.
5.0901031 - Ósk um umsögn að tillögu fyrir stækkun
Þorsteinn Símonarson óskar eftir eftir umsögn varðandi útlitsbreytinga á Blómsturvöllum 1 sbr. skissur af breytingum
Nefndin tekur jákvætt í erindið.
6.0901025 - Ósk um umsögn varðandi hugmyndir um verslunar og skrifstofuhúsnæði ásamt bensínstöð við Víkurbraut
Grindin kt. 610192-2389 óskar eftir umsögn varðandi hugmyndir að verslunar og þjónustuhúsnæði ásamt bensínstöð við Víkurbraut 64 samkv. teikningum frá TARK dags. 10.09.2008
Nefndin tekur jákvætt í erindið.
7.0901017 - Umsókn um byggingarleyfi
Þorsteinn Guðmundsson sækir um byggingarleyfi fyrir sólstofu yfir núverandi svalir skv. meðfylgjandi teikningum frá verkfræðistofunni Verkmáttur dags. 24.11.08
Nefndin samþykkir erindið.
8.0901030 - Umsókn um byggingarleyfi
Guðmundur Sigurðsson óskar eftir byggingarleyfi og breytingu á notkun húsnæðis við Hafnargötu 4 samkvæmt teikningum frá VSS dgs 06.11.08
Nefndin samþykkir erindið.
Pétur Breiðfjörð vék af fundi
9.0901032 - Ósk um framkvæmdarleyfi vegna vinnu við fráveitumál Bláa Lónsins ásamt gögngustígagerð.
Bláa Lónið óskar eftir framkvæmdarleyfi til að byrja að grafa í affall Bláa Lónsins og Hitaveitu Suðurnesja – sjá meðfylgjandi teikningu. Farið yrði á gröfu þar sem rauða strikið sýnir en þeirri leið yrði síðan breytt í göngustíg í framtíðinni. Sá gröftur sem þarf að framkvæma er þar sem rauði punkturinn er.
Nefndin samþykkir erindið, enn bendir á mikilvægi þess að fundin verði varanleg lausn á affalsmálum í Svartsengi.
10.0812050 - Varðar: Deiliskipulag Reykjanesbæjar - Mótópark
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar afhendir hér með Grindavíkurbæ meðfylgjandi Umhverfisskýrslu vegna deiliskipulags Motopark til umsagnar skv. 3. málsgrein 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006
Nefndin frestar erindinu.
11.0809023 - Deiliskipulagsbreyting í Svartsengi
Deiliskipulagsbreyting í Svartsengi - 0809023
Grindavíkurbær hefur látið gera breytingar á umhverfisskýrslu VSÓ Ráðgjafar samkv. athugasemdum Skipulagsstofnunar dags. 19. desember 2008 er lýtur að sjónrænum áhrifum.
Nefndin tekur deiliskipulagsbreytinguna til annarar umræðu sbr. 1. mgr. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Nefndin samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________