Grindavíkurbær
• forstöðumaður tæknideildar •
05.09 2008,
Skipulags- og byggingarnefnd
Árið 2008, föstudaginn 5. september kl. 12:00, hélt skipulags- og byggingarnefnd
Grindavíkur 491. fund sinn. Fundurinn var haldinn á bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar
við Víkurbraut 62.
Þessir nefndarmenn sátu fundinn:
Sigurður Ágústsson, Ólafur Guðbjartsson, Pétur Breiðfjörð, Sigurður Kristmundsson,
og Unnar Magnússon. Auk þess sat fundinn Ingvar Þ. Gunnlaugsson forstöðumaður
Tæknideildar.
Dagskrá:
Ýmis mál
1.Baklóð Víkurbrautar 62, Ósk um lóð
Grindavíkurbær kt.580169-1559, Víkurbraut 62, 240 Grindavík óskar eftir baklóð
Víkurbrautar 62 til byggingar menningar og fræðsluseturs.
Þar sem lóðin er ekki til inn á deiliskipulagi leggur nefndin til að nýtt deiliskipulag verði unnið hið fyrsta fyrir svæðið austan Víkurbrautar 62, til þess að úthluta megi lóðinni.
Umferðarmál
2.Þrengingar við Mánagötu og Túngötu, fyrirspurn til nefndarinnar
Sigurður Ágústsson formaður nefndarinnar óskar eftir svörum við því, af hverju
ekki sé unnið að þrengingum við Mánagötu og Túngötu.
Umferðargreinir hefur verið staðsettur í 14 daga við Mánagötu, verið er að vinna úr gögnum greinisins. Í framhaldi af því verður hraðagreinir settur upp við Túngötu og þegar að þær niðurstöður liggja fyrir verða ákvarðanir teknar.
Skipulagsmál
3.Deiliskipulagsbreyting, Svartsengi – tillaga að deiliskipulagsbreytingu ásamt
umhverfisskýrslu.
Gerð er breyting á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Svartsengi, breytingin felst
í byggingarreitum og aðkomu vegna koldíðoxíðvinnslu bætt við á nýju bygginga-
og framkvæmdarsvæði. Deiliskipulagsuppdráttur er unnin af VSÓ dags. júlí 2008
Nefndin samþykkir að auglýsa ofangreinda tillögu skv.1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga ásamt umhverfisskýrslu en heimilar jafnfram að gerðar verði á henni breytingar samkvæmt leiðbeiningum Vegagerðarinnar og Skipulagsstofnunar, verði þær settar fram.
4.Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu framkvæmda. Tilraun til bindingar á
koldíðoxíði úr útblæstri frá orkuverinu í Svartsengi. – ósk um umsögn
Í samræmi við 6.gr. laga nr. 106/2000 m.s.b. og 11. gr. reglugerðar nr. 1123/2005
um mat á umhverfisáhrifum er hér með óskað umsagnar Grindavíkurbæjar um hvort
og á hvaða forsendum ofangreind framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum að
teknu tilliti til 3. Viðauka í framangreindum lögum.
Nefndin telur að samkvæmt upplýsingum sem nefndin hefur aflað sér, að bygging tilraunaverksmiðju til metanólframleiðslu muni ekki hafa umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð umhverfismati.
5.Tillaga að bréfi vegna undanþágu vegna fjarlægðar koldíðoxíðvinnslusvæðis frá
stofn- opg tengivegum – tillaga að bréfi
Lögð er fram tillaga að bréfi, undanþága frá ákvæðum skipulagsreglugerðar 400/1998,
kafla 4.16.2. þar kemur fram „ við deiliskipulag svæða utan þéttbýlis skal þess
gætt að ekki sé byggt nær stofn- og tengivegum en 100m[...]“
Nefndin samþykkir framlagðan texta að bréfi frá forstöðumanni Tæknideildar og
felur honum að senda bréfið áfram til Umhverfisráðuneytisins.