Jólagjöf starfsmanna Grindavíkurbæjar 2020 verður með sama sniði og undanfarin ár, gjafabréf sem virkar sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Grindavík. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Grindavíkurbæjar gegn framvísun gjafabréfsins. Grindavíkurbær biður þau fyrirtæki sem hafa áhuga á því að vera með að senda tölvupóst á kristinmaria@grindavik.is í síðasta lagi mánudaginn 7. desember nk.
Stefnt er að því að senda gjafabréfin út fljólega svo hægt sé að nýta þau fyrir jólin.