Ţriđji bekkur í útikennslu á miđvikudögum

  • Grunnskólafréttir
  • 19. nóvember 2020

Fjöll máluð í hrauninu, leitað að tröllum, gróður og skjól, margföldun, andheiti, leikir og fleira og fleira er allt meðal viðfangsefna í 3.bekk í útikennslu. Frá því að nemendur byrjuðu í skólanum hefur stefnan verið tekin á að kenna reglulega úti og í vetur hefur tekist að koma því við á miðvikudögum. Verkefnin er oft tengd við námsefnið þannig voru fjöll máluð þegar kennt var um fjöll, leitað að tröllum þegar Ástarsaga úr fjöllunum var lesin, og almenn stærðfræði og íslenskuverkefni eru æfð í gegnum leik. Nemendur njóta þess að fara út og leggja sig fram í hvívetna. Hafa veðurguðirnir verið hliðhollir enn sem komið er. Útivera eflir geð, kætir og styrkir nemandann einstaklingslega sem og í samskiptum við aðra.

 

 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!