Það verður opin kirkja kl.14:00 – 17:00 sunnudaginn 1. nóvember á Allra heilagra messu. Vegna samkomutakmarkana getum við ekki haldið hefðbundna Allra heilagra messu 1. nóvember eins og venja er.
Þess í stað verður kirkjan opin klukkan 14:00-17:00 þar sem hægt er að koma og tendra bænaljós.
Sr Elínborg verður á staðnum og les texta og bænir á heila og hálfa tímanum og ljúf tónlist mun hljóma í kirkjunni.