Hertar ađgerđir á höfuđborgarsvćđinu: Ţetta er munurinn

  • COVID
  • 7. október 2020

Búið er að herða samkomutakmarkanir enn frekar á höfuðborgarsvæðinu en á miðnættu tóku þær gildi. Helsta breytingin á höfuðborgarsvæðinu er að þar er starfsemi sem krefst mikillar snertingar óheimil, mælst er til grímunotkunar í verslunum og sund- og baðstöðum hefur verið lokað. Þá hefur opnunartími veitingastaða verið skertur.

Samkomutakarkanir í gildi á höfuðborgarsvæðinu:

  • Nálægðarmörk 2 metrar: Nálægðarmörk verða 2 metrar. Það á einnig við í öllum skólum, að undanskildum börnum fæddum 2005 og síðar.
  • Þjónusta sem krefst snertingar eða mikillar nándar: Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar eða ef hætta er á snertingu milli fólks eða mikillar nálægðar er óheimil. Þetta á við svo sem um hárgreiðslustofur, snyrtistofur, nuddstofur, húðflúrunarstofur og aðra sambærilega starfsemi. Framangreint á þó ekki við um starfsemi heilbrigðisstarfsfólks við veitingu heilbrigðisþjónustu en í þeim tilvikum er skylt að nota andlitsgrímur.
  • Verslanir: Viðskiptavinum verslana verður skylt að bera andlitsgrímur ef ekki er hægt að tryggja a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
  • Sund- og baðstaðir: Sund- og baðstöðum verður lokað.
  • Íþróttir og líkamsrækt innandyra óheimil: Líkamsrækt, íþróttastarf og sambærileg starfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu á milli fólks eða mikilli nálægð, eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér er óheimil innandyra.
  • Íþróttir utandyra: Íþróttir utandyra eru heimilar en áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra skulu ekki vera fleiri en 20 í hverju rými. Áhorfendur skulu bera grímu og sitja í merktum sætum. 
  • Sviðslistir: Á viðburðum svo sem í leikhúsum, kvikmyndahúsum, á tónleikum o.þ.h. mega gestir ekki vera fleiri en 20 að hámarki. Gestir skulu allir bera grímu og sitja í merktum sætum.
  • Veitingastaðir: Þeir veitingastaðir sem mega hafa opið (krár og skemmtistaðir skulu vera lokaðir) mega ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00.

Takmarkanir fyrir börn fædd 2005 og síðar:

  • Skólasund: Þrátt fyrir lokun sundstaða er heimilt að halda úti skólasundi fyrir börn fædd 2005 og síðar.
  • Íþrótta- og æskulýðsstarfsemi og tómstundir barna sem eru fædd 2005 og síðar er  heimil. 
  • Keppnisviðburðir: Keppnisviðburðir barna sem fædd eru 2005 og síðar þar sem hætta er á blöndun hópa umfram hefðbundnar æfingar eru óheimilir.
  • Nálægðar- og fjöldamörk: Líkt og áður gilda nálægðar- og fjöldamörk ekki um börn fædd 2005 og síðar.

Með höfuðborgarsvæðinu er átt við Reykjavík, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavog.

Samkomutakmarkanir í gildi utan höfuðborgarsvæðisins:

  • 20 manna fjöldatakmarkanir, en 50 manna hámark í útförum og 100 manna hámark í tilteknum verslunum
  • Krám, skemmtistöðum, spilasölum og líkamsræktarstöðvar lokaðar.
  • Sundlaugar mega taka við 50% af leyfilegum fjölda gesta.
  • Óskert starfsemi leik- og grunnskóla. 30 manna fjöldatakmarkanir í framhalds- og háskólum.
  • Eins metra regla og grímuskylda þar sem ekki er hægt að tryggja fjarlægð.
  • Sviðslistir: Heimilt verður að halda viðburði þar sem 100 manns koma saman í afmörkuðu hólfi. Sæti skulu vera númeruð, nafn gesta í hverju sæti skráð og öllum áhorfendum ber að nota andlitsgrímu.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun