Auglýst eftir frambođum í Ungmennaráđ Grindavíkur
- Fréttir
- 8. september 2020
Hefur þú áhuga á því að taka þátt í spennandi starfi Ungmennaráðs Grindavíkur? Í samræmi við samþykktir Ungmennaráðs er auglýst eftir framboðum í Ungmennaráðið. Eftirfarandi fjögur sæti eru laus:
- 13-16 ára. Tveir aðalmenn til tveggja ára. Einn varamaður til tveggja ára. Verði frambjóðendur fleiri en sæti í kjöri, skal fara fram bein kosning meðal nemenda í Grunnskóla Grindavíkur.
- 16-18 ára. Þrír aðalmenn til tveggja ára. Einn varamaður til tveggja ára. Verði frambjóðendur fleiri en sæti í kjöri, skal fara fram bein kosning á auglýstum framboðsfundi. Atkvæðisbærir eru ungmenni á aldrinum 16-18 ára með lögheimili í Grindavík.
Helsta markmið og hlutverk ungmennaráðs er:
- að koma skoðunum og tillögum ungs fólks til viðeigandi aðila í stjórnkerfi sveitarfélagsins,
- að gæta hagsmuna ungs fólks t.d. með umfjöllun og umsögnum um einstök mál sem snerta aldurshópinn sérstaklega,
- að undirbúa árlegt þing ungs fólks í Grindavík í samstarfi við viðeigandi stofnanir og forstöðumenn,
- að fulltrúar ráðsins þjálfist í lýðræðislegum vinnubrögðum og læri á stjórnkerfi sveitarfélagsins,
- að vera ráðgefandi um framtíðarsýn í rekstri félagsmiðstöðva sveitarfélagsins,
- að gera tillögur til bæjarstjórnar um stefnumörkun um málefni ungs fólks
Tilkynningu um framboð skal senda á netfangið elinborg@grindavik.is. Senda skal nafn, heimilisfang, netfang og kennitölu. Auk þess þarf að fylgja með af hverju viðkomandi hafi áhuga á að bjóða sig fram í ungmennaráð.
Framboðsfrestur er til og með 8. september 2018.
Nánari upplýsingar veitir Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðumaður Þrumunnar.