98. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 4. júní 2020 og hófst hann kl. 16:30.
Fundinn sátu:
Guðmundur Grétar Karlsson, formaður, Arna Björg Rúnarsdóttir, aðalmaður, Siggeir Fannar Ævarsson, aðalmaður, Guðbjörg Gerður Gylfadóttir, aðalmaður, Sigurpáll Jóhannsson, varamaður, Fríða Egilsdóttir, skólastjóri, Inga Þórðardóttir, skólastjóri, Hulda Jóhannsdóttir, skólastjóri, Sæborg Reynisdóttir áheyrnarfulltrúi og Guðmundur
Fundargerð ritaði: Ingibjörg María Guðmundsdóttir, Yfirsálfræðingur.
Dagskrá:
1. Skóladagatal 2020-2021 - 2006007
Skólastjóri Tónlistarskóla Grindavíkur leggur fram til samþykktar skóladagatal fyrir skólaárið 2020-2021.
Fræðslunefnd frestar afgreiðslu til ágúst fundar og felur starfsmanni nefndarinnar að afla frekari upplýsingar.
2. Fagháskólanám í leikskólafræðum - 2005095
Sigurlína Jónasdóttir leikskólaráðgjafi mætti undir þessum lið og gerði grein fyrir vinnu í hópnum um fagháskólanám á Suðurnesjum og stöðunni í dag.
Fræðslunefnd lýsir ánægju með framtakið og telur þetta tækifæri fyrir fólk með starfsreynslu í leikskóla til að mennta sig á Suðurnesjum í leikskólafræðum.
3. Skóladagatal 2020-2021 - 2005053
Skólastjóri Lautar leggur fram skóladagtal fyrir skólaárið 2020-2021.
Fræðslunefnd samþykkir framlagt skóladagatal.
4. Skóladatal 2020-2021 - 2005054
Skólastjóri Heilsuleikskólans Króks leggur fram skóladagatal fyrir skólaárið 2020-2021.
Fræðslunefnd samþykkir framlagt skóladagatal.
5. Niðurstöður foreldrakönnunar skólapúlsinn 2020 - 2006001
Skólastjóri Lautar kynnti niðurstöður af foreldrakönnun Skólapúlsins sem lögð var fyrir í mars.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:40.