Eagles og gömlu sjómannalögin á Bryggjunni

  • Fréttir
  • 2. júní 2020

Eagles heiðurstónleikar og gömlu góðu sjómannalögin verða á Bryggjunni Grindavík um sjómannahelgina.Það verður skemmtileg tónlistardagskrá í Netagerðarsalnum á Bryggjunni í Grindavík um Sjómannahelgina.
 
Föstudagskvöldið 5. júní verða tónleikar þar sem hinir þjóðkunnu tónlistarmenn Jógvan Hansen,  Matthías Matthíasson, og Vignir Snær Vigfússon flytja helstu smelli hljómsveitarinnar The Eagles.  Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og miðar fást á www.tix.is og við hurðina.
 
Laugardaginn 6.júni verða svo tónleikar þar sem flutt verður úrval af gömlu, góðu sjómannalögunum.   Bakkalábandið er skipað Vísis fjölskyldunni, Margréti,  Pétri,  Kristínu og Svanhvíti Pálsbörnum, ásamt Ársæli Mássyni,  Axel Ómarssyni,  Halldóri Lárussyni og engum öðrum en sóttvarnalækninum Þórólfi Guðnasyni.  Dagskráin hefst kl. 15:00 og aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir.
 
Bryggjan Grindavík var opnað sem kaffihús árið 2009, og 2019 var opnaður nýr tónleikasalur í Netagerðarsalnum. 
 
Frekari upplýsingar veita 
Hilmar S. Sigurðsson  hilmar@nisdev.net  sími 696-9100 
Axel Ómarsson axel@axelomusic.com sími 894-5656


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir