Öflugir sumarstarfsmenn teknir til starfa

  • Fréttir
  • 26. maí 2020

Grindavíkurbær hefur skapað um 50 ný störf í sumar en flest þeirra verða í nýjum umhverfishópi þjónustumiðstöðvar. Hópurinn er mjög öflugur og vinnur hratt og örugglega. Þetta má þegar sjá í fegrun bæjarins en undanfarna daga hefur verið unnið að undirbúningi fyrir komu ærslabelgs eða hoppubelgs sem verður staðsettur við Sólarvéð hjá íþróttahúsinu. Þá hefur verið unnið að því að tyrfa á svæðinu í kringum bílastæðið við Hópið. En á myndunum má líka sjá ný bílastæði sunnan megin við gamla íþróttahúsið.

Framundan hjá vinnuhópnum í sumar eru fjölmörg verkefni en meðal þeirra eru t.d. að vinna í ófrágengnum svæðum innan bæjarmarkanna (Hópið, stúkan, Kvikan, Hreystigarðurinn o.fl.), m.a. tyrfa og sá, ganga frá bílastæðum við Selskóg, planta trjám innan bæjarmarkanna og við Þorbjörn og ganga frá gangstéttum og tyrfa í Hópshverfi.

Listinn er sannarlega ekki tæmandi en miðað við vinnusemi hópsins verður gaman að sjá afrakstur vinnunnar í lok sumars. Vinnuskólinn hefst síðan eftir skólaslit en þá bætast við 140 nemendur sem er 35% auknins frá því í fyrrasumar. 

Myndir frá fyrsta degi


 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir