Örfá sćti laus á söngnámskeiđ hjá Bertu Dröfn

  • Fréttir
  • 25. maí 2020

Berta Dröfn Ómarsdóttir býður upp á söngnámskeið í Grindavík 8.-12. júní fyrir börn á aldrinum 8-13 ára (2.-7. bekkur). Kennt verður í litlum hópum, í 50 mín á dag. 

Farið verður yfir undirstöðuatriði í söngtækni og framkomu. Unnið verður markvisst að viðhalda og varðveita sönggleði, sköpunarkraft og sjálfstraust nemandans. Hver nemandi fær hljóðupptöku af sér syngja sem unnin er í samstarfi við Haffa Tempó. Einnig verða tónleikar þar sem afraksturinn verður sýndur. 

Verð er 15.000 kr. Innifalið er fræðsla, söngtímar, leikir, hljóðupptaka og framkoma á tónleikum. 
Athugið að takmarkað pláss er á námskeiðinu og gildir fyrstur kemur fyrstur fær. 

Skráning fer fram hjá Bertu á netfanginu berta@berta.is. 
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir