72. fundur skipulagsnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 18. maí 2020 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Guðmundur L. Pálsson, formaður, Anton Kristinn Guðmundsson, aðalmaður,
Lilja Ósk Sigmarsdóttir, aðalmaður, Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður,
Sigurður Guðjón Gíslason, varamaður, Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Dagskrá:
1. Deiliskipulag - Norðan Hópsbrautar - 1901081
Tillaga að nýju deiliskipulagi norðan Hópsbrautar lögð fram.
Fulltrúar verkfræðistofunar Eflu sátu fundinn. Efla vinnur úr athugasemdum nefndarinnar.
2. Hverfisskipulag í Grindavík - 1909137
Skipulagslýsing á hverfiskipulagi valla- og stígahverfi lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir skipulagslýsinguna með þeirri breytingu að raðhúsin við Efstahraun 2-20 verði utan þessa hverfisskipulags. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að leitað verði umsagnar Skipulagsstofnunar og umsagnaraðilum ásamt því að hún verði kynnt almenningi í samræmi við 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Erindi vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
3. Víkurhóp 16-22 - breyting á deiliskipulagi - 2005015
Grindin ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Óskað er eftir að fækka íbúðum úr 4 í 3.
Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi engin áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp né nýtingarmöguleika. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við færslu á innviðum á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.
Erindinu vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
4. Hafnargata 22 - breyting á deiliskipulagi - 2004023
Grenndarkynning á tillögu á breyttu deiliskipulagi við Hafnargötu 22 hefur farið fram. Engar athugasemdir bárust við grenndarkynningunni á deiliskipulagsbreytingunni.
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við færslu á innviðum á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna.
5. Víkurhóp 10-14 - breyting á deiliskipulagi - 2005014
Grindin ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi norðan Hópsbrautar. Óskað er eftir að fækka íbúðum úr 3 í 2.
Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi engin áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp né nýtingarmöguleika. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
Lóðarhafi ber að greiða allan þann kostnað sem af breytingunni hlýst. Auk hinnar eiginlegu skipulagsvinnu þá má t.d. nefna kostnað sem verður til við færslu á innviðum á skipulagssvæðinu vegna breytingarinnar.
Erindinu vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
6. Suðurnesjalína 2: Álit Skipulagsstofnunar - 2004031
Álit Skipulagsstofnunar á Suðurnesjalínu 2 lagt fram til upplýsinga.
7. Túngata 1 - umsókn um byggingarleyfi - 2005050
Umsókn um byggingarleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Túngötu 1. Um er að ræða að eigandi húsnæðisins óskar eftir því að stækka íbúð á 1. hæð á kostnað bílskúrs, þ.e.a.s. bílskúrnum er breytt í íbúð og byggt á milli húsa, einnig ætlar húseigandi að byggja bíslag við 2. hæð.
Skipulagsnefnd telur að breytingin hafi óveruleg áhrif á útsýni, innsýn, skuggavarp og nýtingarmöguleika. Skipulagsnefnd samþykkir erindið.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
8. Víkurhóp 57 - umsókn um lóð - 2005049
Bjarg íbúðarfélag sækir um lóðina Víkurhóp 57. Skipulagsnefnd samþykkir umsóknina.
Erindi vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
9. Göngu- og vegslóði upp á Þorbjörn - 2005039
Til umræðu er ástand á göngu og vegslóða upp á Þorbjörn.
Sviðsstjóra falið að ræða við veghaldara á vegslóða upp á Þorbjörn til að lagfæra slóðann.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:35.