Tilkynning til fasteignaeigenda um álagningu fasteignagjalda árið 2020
Álagningu fasteignagjalda 2020 er lokið.
Álagningarseðlar fyrir árið 2020 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út í bréfapósti.
Fasteignaeigendur geta nálgast álagningarseðilinn á www.island.is með því að skrá sig inn, annaðhvort
með rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Íslykil mál nálgast á www.islykill.is.
Grindavíkurbær mun þó senda einstaklingum 67 ára og eldri og fyrirtækjum álagningarseðil í bréfapósti.
Álagningarákvæði
Fasteignaskattur: Samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4 frá 1995 með síðari breytingum.
3. gr. laganna:
a) Allt að 0,5% af fasteignamati: Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og
jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, hesthús, öll hlunnindi og
sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
b) 1,32% af fasteignamati ásamt lóðarréttindum: Sjúkrastofnanir, skólar, heimavistir, leikskólar,
íþróttahús og bókasöfn.
c) Allt að 1,32% af fasteignamati ásamt lóðarréttindum: Allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-,
skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir
ferðaþjónustu.
Heimilt er sveitarstjórn að hækka prósentur tilgreindar í a og c liðum um allt að 25%.
Önnur gjöld eru ákveðin árlega af bæjarstjórn.
Undanþegin fasteignaskatti eru kirkjur, bænahús, safnahús og hús erlendra ríkja, sbr. 5 grein laganna.
Annað
Íbúðir Stofnanir húsnæði
a-liður b-liður c-liður
Álagningarreglur 2020
Íbúðir a-liður | Stofnanir b-liður | Annað húsnæði c-liður | ||
Fasteignaskattur............................... | 0,280% | 1,320% | 1,320% | af fasteignamati |
Lóðarleiga....................................... | 1,100% | 2,000% | 1,600% | af fasteignamati |
Holræsagjald.................................... | 0,090% | 0,250% | 0,200% | af fasteignamati |
Rotþróargjald................................... | 20.000 | 20.000 | 20.000 | kr |
Vatnsgjald | ||||
Almennt vatnsgjald..................... | 0,055% | 0,250% | 0,200% | af fasteignamati |
Aukavatnsgjald........................... | 18 | 18 | kr/m3 vatns | |
Sorphreinsunargjald/tunnuleiga........... | 17.346 | kr. sorpílát pr. ár | ||
Sorpeyðingargjald............................... | 28.299 | kr. sorpílát pr. ár | ||
Fjöldi gjalddaga.................................. | ||||
1/2, 1/3, 1/4, 1/5, 1/6, 1/7, 1/8, 1/9, 1/10 og 1/11 2020 |
Álagning 20.000 kr. og lægri fer öll á 1. gjalddaga, þ.e. .2.2020
Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega
Elli- og örorkulífeyrisþegar eiga rétt á afslætti á fasteignaskatti og holræsagjaldi samkvæmt reglum sem
samþykktar voru í bæjarstjórn 24. september 2013. Reglurnar má nálgast á heimasíðu
Grindavíkurbæjar undir "Stjórnsýsla" "Samþykktir/Reglugerðir/Stefnur".
Afslátturinn er tekjutengdur og skila þarf inn staðfestu skattframtali á álagningarári vegna tekna og eigna
fyrra árs. Tekjuviðmið eftirfarandi:
Tekjuviðmið (tekjuskattsstofn að meðtöldum fjármagnstekjum og tekjum erlendis ef um þær er að ræða),
vegna afsláttar á fasteignaskatti og fráveitugjaldi 2020.
Tekjur | Tekjur | |
einstaklinga árið 2019 | hjóna árið 2019 | Niðurfelling |
0 – 4.800.000 | 0 – 7.680.000 | 100% |
4.800.001 – 5.300.000 | 7.680.001 – 8.480.000 | 75% |
5.300.001 – 5.800.000 | 8.480.001 – 9.280.000 | 50% |
5.800.000 – 6.300.000 | 9.280.001 – 10.080.001 | 25% |
6.300.001 og hærra | 10.080.001 og hærra | 0% |