Lauts störf viđ leikskólann Laut

  • Lautarfréttir
  • 11. maí 2020

Lausar eru til umsóknar stöður við leikskólann Laut. Sérkennslustjóra, deildarstjóra,  leikskólakennara , þroskaþjálfa eða annað uppeldismenntað fólk vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík frá 12.ágúst næstkomandi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Leikskólinn er fjögra  deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða - 6 ára. Við erum „Skóli á grænni grein“ og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni – Uppeldi til ábyrgðar. Gleði, hlýja og virðing eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu.

Hæfniskröfur:
•     Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
•     Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
•     Færni í samskiptum
•     Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
•     Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 420-1160 og 847-9859. Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið frida@grindavik.is
Endurnýja þarf eldri umsóknir. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2020.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir