93. fundur frístunda- og menningarnefndar haldinn á skrifstofu sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs, 11. mars 2020 og hófst hann kl. 16:30.
Fundinn sátu:
Jóna Rut Jónsdóttir, formaður, Garðar Alfreðsson, aðalmaður, Þórunn Erlingsdóttir, aðalmaður, Bjarni Þórarinn Hallfreðsson, aðalmaður, Alexander Veigar Þórarinsson, aðalmaður og Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Fundargerð ritaði: Eggert Sólberg Jónsson, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
1. Ráðning forstöðumanns íþróttamannvirkja - 2002004
Farið yfir stöðu mála í kjölfar viðtala. Sviðsstjóri mun ganga frá ráðningu á næstu dögum.
2. Menningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2020 - 2002073
Rætt um tilnefningar til menningarverðlauna Grindavíkurbæjar 2020.
3. Endurmörkun Kvikunnar - 2003034
Lögð fram tillaga að nýrri ásýnd Kvikunnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15.