94. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 6. febrúar 2020 og hófst hann kl. 16:30.
Fundinn sátu:
Guðmundur Grétar Karlsson, formaður, Arna Björg Rúnarsdóttir, aðalmaður, Siggeir Fannar Ævarsson, aðalmaður, Jóhanna Sævarsdóttir, aðalmaður, Guðbjörg Gerður Gylfadóttir, aðalmaður, Smári Jökull Jónsson, áheyrnarfulltrúi, Fríða Egilsdóttir, leikskólastjóri, Inga Þórðardóttir, skólastjóri, Guðbjörg Málfríður Sveinsdóttir, grunnskólastjóri, Jenný Rut Guðjónsdóttir áheyrnarfulltrúi, Gígja Eyjólfsdóttir og Hulda Jóhannsdóttir, leikskólastjóri.
Fundargerð ritaði: Ingibjörg María Guðmundsdóttir, Yfirsálfræðingur.
Dagskrá:
1. Ytra mat á skólaþjónustu - 2001019
Formaður leggur fram drög að samningi og verklýsingu á úttekt á skólaþjónustu Grindavíkurbæjar. Fræðslunefnd samþykkir verklýsingu með breytingum á viðmælendum skv. umræðu á fundinum. Fræðslunefnd hefur eina milljón kr til ráðstöfunar skv fjárhagsáætlun en leggur til við bæjarráð að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun til að standa straum af samningnum sem er að upphæð 2.154.640 kr án vsk.
2. Viðbragðsáætlanir skólanna vegna jarðskjálfta - 2002010
Skólastjórar kynntu rýmingaráætlanir skólanna og sögðu frá því hvernig vinnan fór fram. Í umræðum kom fram mikilvægi þess að kalla skólastjórnendur strax að viðbragðsborðinu sem lykilstarfsmenn sveitarfélagsins til að upplýsingamiðlun sé virk.
3. Ytra mat á frístundaheimili - 2002011
Fram voru lagðar reglur Grindavíkurbæjar um frístundaheimili fyrir nemendur í 1.-3. bekk ásamt viðmiðum Menntamálaráðuneytis um þjónustu frístundaheimila.
Fræðslunefnd felur skólastjóra að nýta gátlista um viðmið frístundaheimila í vormati starfsmanna skólans og miðla niðurstöðum sjálfsmatsins til nefndarinnar í haust.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10.