Auglýst eftir flokkstjórum í Vinnuskóla Grindavíkur

  • Fréttir
  • 18. febrúar 2020

Vinnuskóli Grindavíkurbæjar auglýsir eftir flokksstjórum til að starfa við skólann sumarið 2020. Starfstímabil er frá 18. maí til 21. ágúst. Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri og hafi;

- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum,
- mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki en síst ánægju að því að vinna með og leiðbeina unglingum.

Flokkstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi, ástundun og góðri umgengni starfsmanna. Flokkstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skuli að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Eggert Sólberg Jónsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar í síma 420 1100, netfang: eggert@grindavik.is

Umsóknareyðublöð má finna á www.grindavik.is/atvinna. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Grindavíkurbæjar eða á ofangreint netfang. Umsóknarfrestur er til 9. mars nk.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir