Tillaga ađ breytingu á deiliskipulagi Svartsengis, iđnađarsvćđi og svćđi verslunar og ţjónustu í Grindavíkurbć

  • Skipulagssviđ
  • 15. janúar 2020

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Svartsengis, iðnaðarsvæði og svæði verslunar og þjónustu, samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felur í sér eftirfarandi: 
•    Byggingareitir orkuvers 6 og orkuvers 6-stækkun eru stækkaðir um samanlagt 1.400 m2 og leyfileg þakhæð aukin um 3 m. 
•    Nýir byggingareitir eru afmarkaðir fyrir kæliturn OV7, lokahús og hljóðdeyfa OV7 og stækkun á skiljustöð OV5.  
•    Afmörkun bygginga- og framkvæmdasvæðis er stækkuð. 

Breytingartillagan er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.grindavik.is og verður til sýnis á bæjarskrifstofunum að Víkurbraut 62 frá og með 6.janúar nk. til og með 3.febrúar 2020. 

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta geta sent inn athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út 3.febrúar 2020. Skila skal athugasemdum til Atla Geirs Júlíussonar, sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, á netfangið atligeir@grindavik.is eða skrifstofu bæjarins merkt: „Breyting á deiliskipulagi Svartsengis“

Atli Geir Júlíusson,
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar

Hér má sjá breytingartillöguna


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgćđi og mengun