Vegna umrćđu um áramótabrennu

  • Fréttir
  • 30. desember 2019

Líkt og fram kom í frétt sl. föstudag tók frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar þá ákvörðun á fundi sínum þann 2. október sl. að engin áramótabrenna verði á vegum sveitarfélagsins í ár. Í kjölfar fréttarinnar spunnust umræður á samfélagsmiðlum um þá ákvörðun nefndarinnar. Af þeim sökum er rétt að skýra betur frá málavöxtum.

Undanfarin ár hefur Björgunarsveitin Þorbjörn séð um brennuna fyrir hönd sveitarfélagsins og var brennan eitt af þeim verkefnum sem sveitin sinnti samkvæmt samningi við Grindavíkurbæ. Þegar samningur við sveitina var endurnýjaður fyrir um ári síðan óskaði sveitin eftir því að þetta verkefni yrði ekki hluti af nýjum samningi. Sjálfboðaliðar í björgunarsveitinni eru undir miklu álagi í kringum áramót og erfitt þótti að bæta þeirri miklu vinnu sem fylgir utanumhaldi um áramótabrennu ofan á þeirra sjálfboðaliðastörf. Meðal þeirra verkefna sem sjálfboðaliðarnir hafa sinnt er að safna eldivið, leigja tæki, hlaða bálköst, tendra í brennunni, vakta brennuna til morguns, o.fl. Þá er erfitt fyrir sveitina að treysta alfarið á lánstæki frá einkaaðilum.

Rétt er að taka fram að kostnaður Grindavíkurbæjar vegna áramótabrennu undanfarin ár hefur verið 850.000 kr. Frístunda- og menningarsvið Grindavíkurbæjar hefur tekið þátt í, komið að skipulagningu eða skipulagt sex opna viðburði í tengslum við yfirstandandi jól og áramót, þ.e. Fjörugur föstudagur, tendrun á jólatré, jólasýning með Langleggi og Skjóðu, Jólaball Grindavíkur, útnefning á íþróttafólki Grindavíkur og þrettándagleði. Til samanburðar er kostnaður vegna þessara viðburða áætlaður samtals 850.000 kr.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir