Hið árlega Jólaball Grindavíkur verður haldið í dag fimmtudaginn 27. desember kl. 16-18 í Gjánni. Á ballinu verður margt góðra gesta. Söngkonan góðkunna Helga Möller sér um jólalögin, jólasveinar kíkja í heimsókn með góðgæti, dansað verður í kringum jólatréð. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Jólaballið er samstarfsverkefni Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, Verkalýðsfélags Grindavíkur og Grindavíkurbæjar.
Ókeypis aðgangur og eru allir Grindvíkingar hvattir til að mæta með börnin.