Langleggur og Skjóða koma í heimsókn í Kvikuna sunnudaginn 15. desember kl. 10 og skemmta kátum krökkum á öllum aldri.
Langleggur og Skjóða eru systkini jólasveinanna. Þau eru hress og skemmtileg og þykir ekkert skemmtilegra en að vera í jólaskapi. Skjóðu finnst gaman að segja sögur og hún lumar á allskyns undarlegum sögum beint úr Grýluhelli. Í sögunum hennar Skjóðu getur margt gerst og þarf hún oftast hjálp frá börnunum til að leiða sig á réttan stað svo sagan fái farsælan endi. Langleggur er frábær píanóleikari og Skjóða á það til að fá börnin til að syngja með sér uppáhalds jólalögin sín við fallegan undirleik.