Nýsmíðin Páll Jónsson var nefnt við formlega athöfn í Gdansk í gær að viðstöddum eigendum Vísis hf.Skipið var afhent eigendum við hátíðlega athöfn þar sem eigendur, starfsmenn og fleiri voru komnir saman til Gdansk í Póllandi til að fagna og skoða nýja skipið.
Um er að ræða fyrstu nýsmíði af þessarri stærðargráðu í rúmlega 50 ára sögu Vísis. Fram kemur á Facebook síðu Vísis hf að við fyrstu sýn séu eigendur ánægðir með hvernig tókst til. Skipið er nefnt eftir föður Páls Hreins Pálsonar, aðalstofnanda Vísis, eða eins og flestir þekktu hann, sem Palli í Vísi.
Þegar skipi er gefið nafn er sá vani á að slengja kampavínsflösku utan í kinnung þess svo úr freyði. Svanhvít Daðey Pálsdóttir, ein af systkinunum og eigendunum fékk titilinn guðmóðir skipsins og hjó hún á snúruna svo kampavínsflaskan small í og minnst var Alberts Sigurjónssonar, eiginmanns hennar sem lést í maí eftir harða baráttu við krabbamein og skyldi eftir stórt skarð í hjarta fyrirtækisins.
Næst á dagskrá er að sigla skipinu í heimahöfn en það leggur af stað um miðjan desember. Fram kemur á vef Vísis að skipið muni styðja enn betur við stefnu fyrirtækisins um ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og vörugæði sem leiðir til framleiðslu afurða úr fyrsta flokks hráefni.
Meðfylgjandi myndir eru af Facebbok síðu Vísis hf en það má nálgast fleiri myndir.
Eigendur Vísis og makar í Póllandi í gær.