Frí blóđsykursmćling í Nettó á morgun

  • Fréttir
  • 14. nóvember 2019

Lionsklúbbur Grindavíkur býður uppá fría blóðsykurmælingu í Nettó. Mælt verður föstudaginn 15. nóvember, frá kl. 13.00 - 16.00

Mælingin er hluti af landsátaki Lionshreyfingarinnar og vitundarvakningu um sykursýki.

Nóvember ár hvert er mánuður sykursýkisvarna hjá Lions. Þá bjóða Lionsklúbbar víðs vegar um land upp á fría blóðsykurmælingu. Markmiðið er að vekja almenning til umhugsunar um hættuna sem getur stafað af því að ganga með dulda sykursýki

Mælingin er öllum að kostnaðarlausu og viljum við hvetja alla bæjarbúa til að nýta sér þessa þjónustu Lionsklúbbs Grindavíkur

Allir velkomnir í mælingu.
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!