Grindavíkurbær auglýsir eftir starfsmönnum til að starfa við íþróttamiðstöðina. Helstu verkefni eru öryggisgæsla í sundlaug, klefavarsla (kvennaklefa), ræstingar, eftirlit og afgreiðsla.
Um er að ræða tvö störf annarsvegar 50 % starf í dagvinnu og hins vegar 100% starf í vaktavinnu. Bæði þessi störf eru kvennastörf. Reiknað er með að viðkomandi hefji störf 2. jan. 2020
Leitað er að einstaklingi sem hefur;
- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, getur unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum,
- reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum
- þekkingu í skyndihjálp og getu til að standast kröfur sem gerðar eru til sundlaugarvarða.
Vakin er athygli á því að ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ GRINDAVÍKUR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja, eða Verkalýðsfélags Grindavíkur
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 660 7304, netfang: hermann@grindavik.is .
Umsækjendur skili umsókn ásamt ferilskrá á netfangið hermann@grindavik.is, einnig er hægt að skila umsóknum á skrifstofu Grindavíkurbæjar í síðasta lagi 18. nóvember 2019 n.k.
Grindavíkurbær.