1530. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 5. nóvember 2019 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður, Páll Valur Björnsson, aðalmaður, Helga Dís Jakobsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, áheyrnarfulltrúi og Birgitta H. Ramsay Káradóttir, varamaður fyrir Hjálmar Hallgrímsson.
Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. Stamphólsvegur 1 - umsókn um byggingarleyfi - 1908081
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Ný útistofa við leikskólann Krók mun verða tekin í gagnið í byrjun árs 2020.
2. Umferðaröryggisáætlun Grindavíkurbæjar - 1909019
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á fundi bæjarstjórnar þann 27. ágúst sl. var lögð fyrir áskorun skipulagsnefndar um að skipuð verði umferðaröryggisnefnd. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að taka málið upp í haust.
Bæjarráð vísar málinu áfram í endurskipulagningu í stjórnsýslunni. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að vinna umferðaröryggisáætlunina áfram.
3. Framkvæmdanefnd Grindavíkurbæjar - 1911002
Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs lagt fram.
Bæjarráð vísar málinu áfram í endurskipulagningu í stjórnsýslunni.
4. Tjaldsvæði: útboðsgögn - 1909133
Upplýsinga- og markaðsfulltrúi sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
5 tilboð bárust í rekstur tjaldsvæðis.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gengið verði til samninga við hæstbjóðanda, þ.e. fyrirtækið Tjald ehf. um rekstur tjaldsvæðisins.
5. Leikskólahúsnæði; Aukning/stækkun - 1807010
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs lagt fram.
Fundarhlé tekið kl. 18:25 - 18:35
6. Kosning í nefndir samkvæmt B-lið 47. gr. samþykktar um stjórn Grindavíkurbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar - 1806026
Minnisblað sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs lagt fram.
7. Öldungaráð - Nýjar samþykktir - 1906003
Kjöri í öldungaráð er vísað til bæjarstjórnar.
8. Gjaldskrá fráveitu - breyting vegna ársins 2020 - 1910095
Lögð fram tillaga um að a. liður 3. gr., í Gjaldskrá fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í Grindavíkurbæ nr. 1155/2018, verði 0,09% í stað 0,075% og að breytingin taki gildi 1. janúar 2020.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.
9. Reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna Grindavíkurbæjar - 1910069
Lögð fram tillaga að breytingu reglna um sí- og endurmenntun starfsmanna Grindavíkurbæjar fyrir árið 2020, þ.a. Heildarfjárhæð verði 0,8% af launum og launatengdum gjöldum að frádreginni lífeyrisskuldbindingu. Skipting á heildarfjárhæð verði sem hér segir: A-liður var 70%, verður 80% B-liður var 20%, verður 12% C-liður var 10%, verður 8%.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.
10. Starfsmannastefna Grindavíkurbæjar - 1910068
Lögð er fram tillaga að breytingu á starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar fyrir árið 2020, þ.a. heilsustyrkur verði að hámarki 30.000 kr. og að starfsaldurstengdar viðbótargreiðslur hækki um 20%.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna.
11. Beiðni um styrk vegna breytinga á knattspyrnuklefum - 1910081
Lögð fram beiðni frá leikmönnum meistaraflokka UMFG í knattspyrnu um styrk vegna breytinga á búningsklefum.
Bæjarráð frestar málinu og óskar eftir frekari gögnum.
12. Kútter Fríða RE13 - Viljayfirlýsing - 1810010
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 250.000 kr.
13. Um fjárbeiðni Stígamóta fyrir árið 2020 - 1910067
Lögð fram beiðni Stígamóta um styrk á árinu 2020.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Stígamót um 50.000 kr. á árinu 2020.
14. Fjáreigendafélag - Ósk um styrk - 1810055
Lögð fram beiðni um styrk frá Fjáreigendafélaginu á árinu 2020.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 50.000 kr. og felur sviðsstjóra að uppfæra fjárhagsáætlun 2020 til samræmis.
15. Námskeið vegna skoteldasýninga - 1911001
Björgunarskóli Slysavarnafélagsins Landsbjargar óskar eftir leyfi fyrir lítilli flugeldasýningu í samstarfi við Björgunarsveitina Þorbjörn 24. nóvember nk. Sýningin tengist námskeiði í uppsetningu og framkvæmd slíkra sýninga.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur upplýsinga- og markaðsfulltrúa að gera grein fyrir málinu á heimasíðu bæjarins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:25.