Laus störf viđ íţróttamiđstöđ Grindavíkur

  • Fréttir
  • 31. október 2019

Grindavíkurbær auglýsir eftir starfsmönnum  til að starfa við íþróttamiðstöðina. Helstu verkefni eru öryggisgæsla í sundlaug, klefavarsla (kvennaklefa),  ræstingar, eftirlit og afgreiðsla. 

Um er að ræða tvö störf  annarsvegar  50 % starf  í dagvinnu og hins vegar 100% starf í vaktavinnu. Bæði þessi störf eru kvennastörf. Reiknað er með að viðkomandi hefji störf 2. jan. 2020

Leitað er að einstaklingi  sem hefur;
-    ríka þjónustulund,
-    góða skipulagshæfileika, getur unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
-    góða hæfni í mannlegum samskiptum,
-    reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum
-    þekkingu í skyndihjálp og getu til að standast kröfur sem gerðar eru til sundlaugarvarða.

Vakin er athygli á því að  ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ GRINDAVÍKUR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja, eða Verkalýðsfélags Grindavíkur

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 660 7304, netfang: hermann@grindavik.is .

Umsækjendur skili umsókn ásamt ferilskrá á netfangið hermann@grindavik.is, einnig er hægt að skila umsóknum  á skrifstofu Grindavíkurbæjar í síðasta lagi 18. nóvember  2019  n.k.

Grindavíkurbær.
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!