Síđustu forvöđ ađ senda tilbođ í rekstur á tjalsvćđinu í Grindavík

  • Fréttir
  • 28. október 2019

Grindavíkurbær auglýsir til leigu aðstöðu og rekstur tjaldsvæðis í Grindavík í fimm ár, eða frá 1. mars 2020. Gert er ráð fyrir að leigutaki taki við aðstöðunni og sjái um allan daglegan rekstur svæðisins og umhirðu, ásamt markaðssetningu þess.  

 Tilboðsfrestur er til kl. 11.00, mánudaginn 28. október 2019. 


Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, Grindavík, kl. 11.00 þann 28. október að  viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.


Þeir sem áhuga hafa á að gera tilboð í leigu tjaldsvæðisins geta nálgast útboðsgögn með því að senda beiðni um gögn á netfangið kristinmaria@grindavik.is. Veittur er fyrirspurnarfrestur til kl. 11.00 þann 21. október 2019.

Öllum fyrirspurnum verður svarað skriflega til þeirra sem tekið hafa gögn. Tilboði skal skila í lokuðu umslagi þannig merktu:
„ÚTLEIGA Á REKSTRI TJALDSVÆÐISINS Í GRINDAVÍK - TILBOÐ"


Á umslaginu skal koma greinilega fram nafn og heimilisfang tilboðsgjafa.

Tilboð skulu send til: 
Grindavíkurbær, Víkurbraut 62, 240 Grindavík.


Nánari upplýsingar gefur Kristín María Birgisdóttir, upplýsinga- og markaðsfulltrúi, í síma 420 1100 eða netfang kristinmaria@grindavik.is

Áskilinn er réttur til að hafna öllum tilboðum. Öllum tilboðum verður svarað skriflega eftir að ákvörðun bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar liggur fyrir.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir