Hefur þú áhuga á því að taka þátt í spennandi starfi Ungmennaráðs Grindavíkur? Í samræmi við samþykktir Ungmennaráðs er auglýst eftir framboðum í Ungmennaráðið. Eftirfarandi sæti eru laus:
- 13-16 ára. Einn aðalmaður til tveggja ára. Þrír varamenn til tveggja ára. Verði frambjóðendur fleiri en sæti í kjöri, skal fara fram bein kosning meðal nemenda í Grunnskóla Grindavíkur.
- 16-18 ára. Einn aðalmaður til tveggja ára. Tveir varamenn til tveggja ára. Verði frambjóðendur fleiri en sæti í kjöri, skal fara fram bein kosning á auglýstum framboðsfundi. Atkvæðisbærir eru ungmenni á aldrinum 16-18 ára með lögheimili í Grindavík.
Helsta markmið og hlutverk ungmennaráðs er:
1. að koma skoðunum og tillögum ungs fólks til viðeigandi aðila í stjórnkerfi sveitarfélagsins,
2. að gæta hagsmuna ungs fólks t.d. með umfjöllun og umsögnum um einstök mál sem snerta aldurshópinn sérstaklega,
3. að undirbúa árlegt þing ungs fólks í Grindavík í samstarfi við viðeigandi stofnanir og forstöðumenn,
4. að fulltrúar ráðsins þjálfist í lýðræðislegum vinnubrögðum og læri á stjórnkerfi sveitarfélagsins,
5. að vera ráðgefandi um framtíðarsýn í rekstri félagsmiðstöðva sveitarfélagsins,
6. að gera tillögur til bæjarstjórnar um stefnumörkun um málefni ungs fólks
Tilkynningu um framboð skal senda á netfangið johannao@grindavik.is. Senda skal nafn, heimilisfang, netfang og kennitölu. Auk þess þarf að fylgja með af hverju viðkomandi hafi áhuga á að bjóða sig fram í ungmennaráð. Framboðsfrestur er til og með 28. október 2019.
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Árni Ólafsson, forstöðumaður Þrumunnar.