Þyrla Landhelgisgæslunnar mun sveima yfir Grindavík upp úr 10:00. Vefsíðunni hefur borist tilkynning þess efnis að með henni í för sé gestur sem börnin á Leikskólanum Laut hafa beðið spennt eftir. Þyrlan mun lenda fyrir aftan leikskólann og er þeirri ábendingu komið á framfæri við íbúa að hafa ekki miklar áhyggjur. Ekki sé um raunverulegt útkall að ræða.
Þau skilaboð komu líka frá Laut að um leyndarmál er að ræða.
ENN EKKI SEGJA BÖRNUNUM FRÁ ÞESSU ÞAR SEM VIÐ VILJUM KOMA ÞEIM Á ÓVART
Athugið að þessi viðburður er eingöngu fyrir leikskólabörnin.