Nú fer að koma sá tími að nemendur koma í skólann í myrkri á morgnana. Því langar okkur að minna forráðamenn á að fara vel yfir umferðaröryggismál með börnunum.
Gott er að fara yfir það hvaða leið er öruggust í skólann því það er ekki alltaf stysta leiðin. Börn yngri en 7 ára mega ekki vera úti í almennri umferð á reiðhjóli nema þau séu undir leiðsögn og eftirliti 15 ára eða eldri. Hafa þarf í huga að hjól verða að hafa glitaugu og lukt og allir verða að vera með endurskinsmerki og nota hjálm. Það er alveg sama hvort börn eru á hlaupahjóli, reiðhjóli eða vespu – allir þurfa að nota hjálm og endurskinsmerki.
Nánari upplýsingar um öryggi í umferðinni má finna á heimasíðu Samgöngustofu, www.samgongustofa.is
https://www.samgongustofa.is/umferd/fraedsla-og-oryggi/fraedsla/reidhjol/oryggisbunadur/