Starfsfólk og nemendur á Leikskólanum Laut óska eftir að fá boli sem fólk er hætt að nota til að búa til tautöskur fyrir t.d. blaut föt. Í tilkynningu á heimasíðu Lautar segir að þau vilji leggja sitt af mörkum til að minnka plastið enda sé skólinn á grænni grein.
Hér er um stórfína hugmynd að ræða fyrir aðra að framkvæma enda ekki flókið verk að breyta taubolum í töskur eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.