Í síðustu viku fékk tónlistarskólinn afar skemmtilega heimsókn frá nemendum í 4. bekk. Tilefnið var að kynna þau fyrir hinum ýmsu hljóðfærum sem finna má í tónlistarskólanum. Nemendur fengu kynningu á gítar, blokkflautu, trompet, slagverk, píanó og söng. Mikil ánægja var meðal nemenda og fengu allir að prófa sem vildu en margir voru að prófa að spila í fyrsta skiptið.
Rannsókn var gerð um áhrif tónlistar á námsárangur barna en foreldrar eru hvattir til að kynna sér þá rannsókn. Hlekk á rannsóknina má finna hér: https://skemman.is/bitstream/1946/1749/1/Ahrif_tonlistar_JHE_heild.pdf