Í Tónlistarskólanum í Grindavík er fjölbreytt námsframboð. Boðið er upp á nám í píanó, gítar, rafmagnsgítar, fiðlu, trompet, þverflautu, slagverk, klassískum- og rytmískum söng og tónfræðigreinum.
Tveir nýir kennarar hafa tekið til starfa við skólann. Það eru þær Sólrún Mjöll Kjartansdóttir sem tekur við sem slagverkskennari og Alexandra Chernyshova sem tekur til starfa sem aðstoðarskólastjóri auk þess sem hún kennir á píanó. Alexandra stefnir einnig á að stofna og stjórna stúlknakór fyrir stúlkur í 4. - 7. bekk. Nánari upplýsingar um stúlknakórinn verða birtar í vikunni.
Við óskum tónlistarnemendum góðs gengis í sínu tónlistarnámi og hlökkum til vetrarins sem framundan er.