Eyţór Ingi međ tónleika á Fish House á laugardaginn

  • Fréttir
  • 2. júlí 2019

Eyþór Ingi verður með tónleika í Grindavík á Fishhouse Bar&Grill í fyrsta sinn á laugardaginn kemur, þann 6. júlí. Í fréttatilkynningu frá Fish House kemur fram að Eyþór Ingi hafi  komið víða við í gegnum tíðina bæði einn,  með hljómsveitum, í söngleikjum eða öðrum sýningum.

"Eyþór hefur meðal annars gert garðinn frægann með sveitum á borð við Todmobile, Eldberg og nú síðast Rock Paper Sisters. Í þetta sinn  kemur hann  fram einn síns liðs með gítarinn, píanóið og röddina að vopni. Eyþór hefur einnig getið sér gott orð fyrir að vera mögnuð eftirherma og á það til að blanda þessu saman í góðan kokteil þar sem fólk grætur úr hlátri milli laga.

Tónleikarnir hefjast kl 21:00 takmarkaður miðafjöldi í boði. Sérstakt forsölu tilboð 3.000.kr  3.990.kr við dyrnar." 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!