Þjóðhátíðardagur Íslendinga verður haldinn hátíðlegur í Grindavík líkt og undanfarin ár. Hátíðarhöldin í ár fara fram á torginu við íþróttahúsið.
Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni
Kl: 10:00 Hátíðarguðþjónusta í Grindavíkurkirkju. 17. júní - Hátíðarmessa
Kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur
Sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir þjónar fyrir altari
Boðið er upp á kaffiveitingar eftir messu
Kl.14:00 Karamelluregn á Landsbankatúninu (ef veður leyfir)
Kl.14:30-16:00 Hátíðardagskrá við íþróttahúsið
• Ávarp fjallkonu
• Hátíðarávarp: Sigurður Óli Þórleifsson, forseti bæjarstjórnar
• Töframaðurinn Daníel Örn
• Tónlistarkeppni 15 ára og yngri
Umsjónaraðili keppninnar er Melkorka Ýr Magnúsdóttir. Skráningar sendist á netfangið melkorkam@grindavik.is ásamt upplýsingum um lag sem á að flytja.
Hoppukastalar og þrautabrautir við Íþróttahúsið
Arctic Horses leyfa börnum að fara á hestbak við Íþróttahúsið frá kl. 14:30-16:30
Slysavarnarsveitin Þórkatla verður með sölu á ýmsu góðgæti, blöðrum og fánum