Bryggjan Grindavík opnar nýjan veitingasal

  • Fréttir
  • 6. júní 2019

Kaffihúsið Bryggjan í Grindavík sem opnaði á Bryggjubakkanum við Grindavíkurhöfn árið 2009 er landsmönnum vel kunnugt.  Nú hefur verið opnaður nýr 500 fermetra veitingasalur á efri hæð hússins þar sem áður var netagerð. 
 
Eigendur staðarins hafa undanfarna mánuði staðið í framkvæmdum og hafa nú opnað viðbót við staðinn, nýjan veitingasal sem kallast Bryggjan Grindavík Netagerð.  Veitingasalurinn er á efri hæð hússins við hlið starfandi netagerðar sem verður áfram rekið sem netagerðarverkstæði í fullum rekstri.   Gestir staðarins munu sjá netagerðina í gegnum glervegg sem er á milli hins nýja veitingastaðar og netagerðarinar.  
 
Miklar svalir eru til suðurs með glæsilegu útsýni yfir höfnina og hinnar frægu innsiglingar ásamt því að upplifa lífið við höfnina.     
 
Nýji salurinn rúmar 230 manns og verður nýttur fyrir ýmsa menningarviðburði og tónleikahald í framtíðinni.   
 
Núna geta stærri hópar nýtt sér þessa frábæru aðstöðu þar sem gestir upplifa ekki eingöngu íslenska fiskirétti og súpur frá Grindavík heldur eru þeir að njóta matar og drykkjar inn í netagerð sem er i fullum rekstri. 
 
Bryggjan Grindavík Kaffihús opnaði árið 2009 af þeim bræðrum Kristni og Aðalgeiri Johannsen og fjölskyldum þeirra.  Þeir bræður hafa rekið netagerð í húsinu sem var byggð árið 1979 en kaffihúsið  var opnað á jarðhæð hússins.  Kaffihúsið sem ber merki þess að vera tengt sjávarútvegi og sjómennsku, hefur öðlaðist sess í hugum þeirra mikla fjölda gesta, erlendum sem innlendum, sem hafa sótt staðinn.  Þeir bræður seldu húsið og nýjir eigendur hafa tekið við fasteigninni og kaffihúsinu.  


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir