Laus störf viđ Tónlistarskólann í Grindavík

  • Tónlistaskólafréttir
  • 22. maí 2019

Tónlistarskólinn í Grindavík auglýsir eftir aðstoðarskólastjóra í 50% stöðu og rytmískum tónlistarkennara í 50% stöðu. 

Tónlistarskólinn í Grindavík er nýlegur skóli byggður og hannaður sem tónlistarskóli, skólinn er vel útbúinn og starfsaðstaða öll til fyrirmyndar. Skólinn er ásamt bókasafni viðbygging við grunnskóla staðarins og innangengt á milli sem gerir það að verkum að auðvelt er að hefja skóladaginn strax að morgni. Tónlistarskólinn í Grindavík sér um forskólakennslu í 1. – 3. bekk grunnskólans, hljóðfærakennslu í 4. bekk og býður upp á valgreinar í 7. – 10. bekk ásamt hefðbundnu hljóðfæranámi og fræðigreinum.  Heimasíða skólans er: http://www.grindavik.is/tonlistarskoli

Aðstoðarskólastjóri í 50% stöðu

Aðstoðarskólastjóri þarf að geta starfað sjálfstætt og verið staðgengill skólastjóra. Mikilvægt er að viðkomandi sé opinn fyrir nýjungum í þróun skólans. Nú er þróunarverkefni í gangi við tónlistarskólann þar sem eftirfylgniaðferð er nýtt við heimanám nemenda.  Aðstoðarskólastjóri er meðkennsluskyldu.

Menntunar og hæfniskröfur:
Menntun tónlistarkennara (tónl.kenn. III skv. kjarasamn. FT/FÍH) eða meiri er æskileg
Færni á tölvur og spjaldtölvur nauðsynleg
Menntun og/eða reynsla af stjórnunarstörfum æskileg
Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
Færni og reynsla af píanókennslu og undirleik er kostur
Mikilvægt er að viðkomandi sé opin fyrir nýjungum í þróun skólans

Rytmískur tónlistarkennari í 50% stöðu

Starfið fellst í kennslu á slagverk, umsjá með skólahljómsveit nemenda og kennslu í litlum hópum nemenda í 4. bekk. Nú er þróunarverkefni í gangi við tónlistarskólann þar sem eftirfylgniaðferð er nýtt við heimanám nemenda.

Menntunar og hæfniskröfur:
Menntun tónlistarkennara (tónl.kenn. III skv. kjarasamn. FT/FÍH) eða meiri er æskileg
Færni á tölvur og spjaldtölvur nauðsynleg
Reynsla af tónlistarkennslu æskileg
Færni á önnur rytmísk hljóðfæri æskileg 
Þekking og reynsla af hljóðupptökum er æskileg
Mikilvægt er að viðkomandi sé opin fyrir nýjungum í þróun skólans

Upplýsingar um störfin gefur skólastjóri, Inga Þórðardóttir og hægt er að ná í hana í síma 420-1133 eða á netfanginu inga@grindavik.is Umsóknum skal skilað ásamt ferilskrá á sama netfang.
Umsóknarfrestur er til 25. maí 2019.
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!