Söngnámskeiđ í júlí

  • Fréttir
  • 30. apríl 2019

Berta Dröfn Ómarsdóttir býður upp á söngnámskeið í Grindavík 1.-5. júlí nk. fyrir börn á aldrinum 7-12 ára (1.-6. bekkur). Kennt verður í litlum hóp milli 9:00 og 12:00 þar sem farið verður yfir undirstöðuatriði í söngtækni og framkomu. Unnið verður markvisst að viðhalda og varðveita sönggleði, sköpunarkraft og sjálfstraust nemandans. Í lok námskeiðs fær hver nemandi hljóðupptöku sem unnin er í samstarfi við Haffa Tempó. Á lokadegi námskeiðs verða hádegistónleikar þar sem afraksturinn verður sýndur. 

Verð er 15.000 kr. Innifalið er fræðsla, söngtímar, leikir, hljóðupptaka og framkoma á tónleikum. 

Athugið að takmarkað pláss er á námskeiðinu og gildir fyrstur kemur fyrstur fær. 

Skráning fer fram hjá Bertu á netfanginu berta@berta.is. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir