Á annan í páskum býður Bláa Lónið og Grindavíkurbær í gönguferð um stórbrotið umhverfi Bláa Lónsins undir leiðsögn Þórunnar Öldu Gylfadóttur. Gangan hefst kl. 11:00 við bílastæði Bláa Lónsins og áætlað er að hún taki um 3 klukkustundir.
Gengið verið m.a. um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól (gígnum sem hraunið kom úr á sögulegum tíma), farið með Skipstíg, fornri þjóðleið, haldið austur með norðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar er ætlunin m.a. að kíkja á þjófaslóðir og hin gömlu sel Grindvíkinga. Þá verður gengið um hið litskrúðuga lónssvæði að lækningalindinni og endað í heilsulind. Ef þess er kosið er hægt að fara rúmlega hálfan hring og fá akstur til baka.
Þeir sem hafa hug á að fara í Bláa Lónið að göngu lokinni eru vinsamlegast beðnir um að ganga tímanlega frá bókun á heimasíðu Bláa Lónsins.
Góður skófatnaður er æskilegur og gott að taka með sér smá nesti.
Enginn þátttökukostnaður er í gönguna og eru allir þátttakendur á eigin ábyrgð.
Hægt er að melda sig í gönguna á Facebook hér.
Við hlökkum til að sjá ykkur!