Bjarni Rúnar Einarsson hefur verið ráðinn byggingarfulltrúi Grindavíkurbæjar og tók hann við starfinu af Sigmari B. Árnasyni. Bjarni Rúnar er borinn og barnfæddur Grindvíkingur á 38. aldursári. Samhliða námi á iðnbraut í húsasmíði hóf hann störf hjá Grindinni og starfaði þar til ársins 2005. Bjarni Rúnar hélt utan til Danmerkur í 4 ára nám í byggingarfræði. Við heimkomu 2008 hóf hann störf hjá ALARK arkitektum og starfaði þar fram að síðustu áramótum. Bjarni Rúnar er í sambúð og á 3 börn.
Bjarni Rúnar hóf störf 2. janúar og er óskað til hamingju með nýja stöðu og boðinn velkominn til starfa. Jafnframt er Sigmari þakkað fyrir vel unnin störf í þágu bæjarfélagsins og óskað velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi. Þá er þökkum komið líka til Péturs Bragasonar, sem var starfandi byggingafulltrúi þar til Bjarni Rúnar tók við starfinu. Skipulagssvið þakkar veitta aðstoð.