Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands minnir á að Lífshlaupið 2019 hefst 6. febrúar. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlugserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.
Lífshlaupið skiptist í fjóra keppnisflokka:
• vinnustaðakeppni frá 6. febrúar – 26. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
• framhaldsskólakeppni frá 6. febrúar – 19. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
• grunnskólakeppni frá 6. febrúar – 19. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
• einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið
Eins og alltaf hvetur Íþrótta- og Ólympíusambandið alla landsmenn til þess að taka þátt í Lífshlaupinu og skapa skemmtilega stemningu og auka félagsandann á vinnustaðnum/í skólanum.
Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en fínar leiðbeiningar má finn hér og undir viðeignadi keppni vinstra megin.
Gaman er að geta fylgst með sinni hreyfingu og jafnframt tekið þátt í þessari skemmtilegu landskeppni. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embættis landlæknis um hreyfingu.
Börnum 15 ára og yngri er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og 16 ára og eldri a.m.k. 30 mínútur á dag. Einnig er auðvelt að ná í hreyfinguna sína úr Strava og Runkeeper fyrir þá sem það nota.
Vinnustaðir, grunnskólar og einstaklingar hér í Grindavík eru hvattir til þátttöku.
SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS Á www.lifshlaupid.is