Samţykkt ađ afturkalla samningsumbođiđ verđi ekki kominn skriđur á samningaviđrćđur í byrjun janúar

  • Fréttir
  • 3. janúar 2019

Í gær 2. janúar 2019 samþykkti stjórn og trúnarráð Verkalýðsfélags Grindavíkur einróma að senda frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:   

„Stjórn og trúnaðarráð Verkalýðsfélag Grindavíkur kallar eftir ábyrgð Samtaka atvinnulífsins vegna yfirstandandi kjaraviðræðna samtakanna og Starfsgreinasambands Íslands. Formanni er falið að draga samningsumboð félagsins til baka frá Starfsgreinasambandi Íslands komist ekki skriður á kjaraviðræður í byrjun janúar eða ef Starfsgreinasambandið verður ekki búið að vísa deilunni til ríkissáttasemjara.“
Einnig var formanni Verkalýðsfélags Grindavíkur veitt fullt umboð til að leita eftir samstarfi við félög utan forystu SGS um samstarf í samningum við SA í byrjun árs 2019 ef ekki verður komið til móts við kröfur félaga í Verkalýðsfélagi Grindavíkur. Félagsmenn urðu samningslausir  1. janúar 2019 og ljóst er að SA hefur dregið lappirnar í samningaviðræðum enda liggur það fyrir að atvinnulífið sparar sér 4 milljarða á mánuði meðan ekki er samið. 

Nánari upplýsingar veitir Hörður Guðbrandsson formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur í síma 892-8603  
 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir