Óvíst hvenćr hrađaeftirlit hefst á Grindavíkurvegi

  • Fréttir
  • 2. janúar 2019

Enn eru ýmsar prófanir eftir á þeim meðalhraðamyndavélum sem komnar eru upp á Grindavíkurvegi. Margir bæjarbúar hafa velt því fyrir sér hvort byrjað sé að mæla meðalhraðann en svo er ekki. Auður Þóra Árnadóttir, forstöðumaður umferðadeildar Vegagerðarinnar sagði í samtali við grindavik.is að ekkert væri hægt að setja til um hvenær mælingar myndu hefjast.  Ríkislögreglustjóri hefði enn ekki gefið formlegt samþykki fyrir notkun búnaðarins, m.a. vegna frumvarps til laga um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi sem er í smíðum. Aðspurð hvers vegna myndavélin mæli ekki þá umferð sem fer í Bláa Lónið, heldur aðeins þá sem fer til Grindavíkur sagði hún að upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að mæla meðalhraða á kaflanum milli Reykjanesbrautar og Bláalónsvegar. Eftir að ákveðið var að hefja breikkun Grindavíkurvegar á þeim kafla var ákveðið að breyta staðsetningunni. "Varðandi staðsetninguna þá lá fyrir að vegna framkvæmda við breikkun væri ekki hægt að setja búnaðinn á þann kafla Grindavíkurvegar, þar sem það var upphaflega fyrirhugað, þannig að það var óhjákvæmilegt að breyta staðsetningunni."
 

Mynd: Otti Sigmarsson


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir