Drög ađ heilbrigđisstefnu gagnrýnd: öldrunarţjónustu veitt lítil athygli

  • Fréttir
  • 2. janúar 2019

Samband íslenskra sveitarfélaga gerir verulegar athugasemdir við drög að nýrri heilbrigðisstefnu og lítur svo á, að drögin séu umræðuskjal, sem marki einungis upphafspunkt í endurnýjuðu stefnumótunarferli. Langur vegur sé frá því að heildstæð stefna hafi verið mörkuð með stefnudrögunum. Þetta kemur fram á vefsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Þá eru athugasemdir einnig gerðar við að samráð hafi ekki verið haft við sveitarfélögin um málið. Góð og gegn markmið um aukna samvinnu á milli heilbrigðiskerfisins og sveitarfélaga geti ekki orðið að veruleika nema með virku samtali.

Meginathugasemdir sambandsins lúta þó að því sem vantar í stefnudrögin. Umfjöllun um öldrunarþjónustu njóti sem dæmi afar takmarkaðrar athygli, enda þótt sá málaflokkur taki nálægt fjórðu hverja krónu sem rennur til heilbrigðiskerfisins.

Er í þessu sambandi m.a. bent á, að meginþáttur í einstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu á félagslegum grunni sé að eldri einstaklingar fái stuðning til þess að búa á eigin heimili. Sveitarfélögin eru sammála þessum áherslum og er fjallað ítarlega um málefnið í stefnumörkun sambandsins 2018-2022. Eins og þar kemur fram, er öflug heimahjúkrun forsenda þess að heimaþjónusta virki. Engu að síður er vægi heimahjúkrunar í heilbrigðiskerfinu allt of lítið. 

Einboðið er því að mati sambandsins, að athyglin beinist að heilbrigðisþætti öldrunarþjónustu þegar  í næsta skrefi stefnumótunarferlisins. Þá þarf einnig að bregðast við krónískri vanfjármögnun, eins og sambandið bendir á í umsögn sinni um frumvarp til fjárlaga 2019. 

Heilbrigðisstefna verður enn fremur að vera mjög skýr um að notendur sem þess þurfa geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu inn á heimili sitt. Afar veigamikil rök, sem snúa bæði að hagkvæmni og rétti sjúklinga, styðja því, að mati sambandsins, að stefna verði mörkuð í þessa veru. 

Þá fagnar sambandið þeirri áherslu sem lögð er í stefnudrögunum á þróun fjarheilbrigðisþjónustu, en minnir jafnframt á að þar séu ýmis verkefni óunnin, þ. á m. laga- og reglugerðarrammi vegna slíkrar þjónustu. 

Sambandið hefur óskað eftir fundi með heilbrigðisráðherra vegna málsins.

Umsagnarfresti um stefnudrögin lauk í gær, þann 19. desember. Nálgast má umsögn sambandsins og umrædd stefnudrög hér að neðan. Aðrar umsagnir um málið eru aðgengilegar á samráðsgátt stjórnarráðsins.
 

Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga: Heilbrigðisstefna - Stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030
 HEILBRIGÐISSTEFNA - Stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir