Lausar kennarastöđur vegna forfalla

  • Grunnskólafréttir
  • 21. nóvember 2018

Staða umsjónarkennara í 1.bekk og staða umsjónarkennara í 9.bekk, þar sem aðal kennslugreinar eru íslenska og danska, eru nú lausar vegna forfalla. Umsóknarfrestur er til 1.desember en ráðið er í stöðurnar frá 1.janúar 2019 og út skólaárið.

Grunnskóli Grindavíkur er heildstæður, einsetinn grunnskóli með 510 nemendur í tveimur starfsstöðvum. Í Grunnskóla Grindavíkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni og lögð áhersla á að skapa námsumhverfi í samráði við foreldra þar sem allir eru virkir, að öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.

Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans.

Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla sem eru metnaðarfullir og góðir í mannlegum samskiptum, með skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýra leiða í skólastarfi.

Karlar jafnt sem konur eru hvattar til að sækja um starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendast á netfangið gudbjorgms@grindavik.is

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420-1200.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir