Popplegur lestrarsprettur

  • Grunnskólafréttir
  • 11. nóvember 2018

Undanfarnar tvær vikur hafa börnin í 1. -3. bekk í Hópsskóla tekið þátt í lestrarpretti. Lestrarspretturinn er viðbótarlestur við þær 15 - 20 mínútur sem nemendur eiga að lesa í heimalestri daglega. Markmiðið með lestrarsprettinum er að auka áhuga á lestri og auka lesskilning. Börnin lásu aukalesturinn heima í frjálslestrabókum og fullorðin skráði mínútufjöldan á sérstakt kvittanablað. Fyrir hverja mínútu sem barnið las var ein poppbaun sett í sameiginlegan bauk og var markmið bekkjana að ná að safna saman sem flestum baunum svo hægt yrði að bjóða upp á ærlega poppveislu í lokin. 

Lestrarspretturinn gekk rosalega vel og í dag var haldin uppskeruhátíð. Börnin máttu mætta í grímubúningum í skólann og skólastjórinn og deildarstjórinn voru allan morguninn að poppa úr baununum þeirra. Í lok dags var síðan boðið upp á popp og myndasýningu. Börnin voru mjög ánægð með árangurinn eins og sjá má á meðfylgjandi myndum en fleiri myndir má sjá á Facebook síðu skólans hér.  
 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!