31. fundur umhverfis- og ferðamálanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 10. október 2018 og hófst hann kl. 16:15.
Fundinn sátu:
Sigurveig Margrét Önundardóttir, formaður, Klara Bjarnadóttir, aðalmaður, Teresa Björnsdóttir, aðalmaður, Unnar Á Magnússon, aðalmaður, Sigurður Ólafsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Siggeir Fannar Ævarsson, upplýsinga- og skjalafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Siggeir F. Ævarsson, upplýsinga- og skjalafulltrúi.
Dagskrá:
1. Umhverfis- og ferðamálanefnd: Samþykkt og fundadagatal - 1809043
Fundartími nefndarinnar verður alla jafna annan miðvikudag í mánuði, kl. 16:15. Gert er ráð fyrir 10 fundum yfir árið.
2. Kynning - Umhverfismál fyrir nefndir og stjórnsýslu - 1810023
Ólafur Árnason frá Eflu kom á fundinn og fór yfir helstu verkefni og hlutverk umhverfis- og ferðamálanefnda.
3. Rafhleðslustöðvar: Mögulegar staðsetningar og kostnaðargreining - 1709062
Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að kanna nánar áhuga rekstraraðila hleðslustöðva á að setja upp slíkar stöðvar í Grindavík.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.