Járngerður er komin út, en 2. tölublað hennar kemur vanalega að hausti, stútfullt af nýjum og spennandi greinum. Ritstjóri blaðsins er Siggeir F. Ævarsson, upplýsinga- og skjalafulltrúi, en greinarnar í blaðinu koma úr ýmsum góðum áttum, ekki síst frá skólunum okkar, sem fá alla jafna stóran sess í haustblaðinu og er þetta tölublað engin undantekning. Við gerum líka upp ýmsa hluti frá sumrinu, eins og umhverfisverðlaunin og vinnuskólann, og þá fékk blaðamaður blaðsins einnig að líta inn í heimsókn í Víðihlíð, en þangað er alltaf gaman að koma enda íbúarnir yndislegir og starfsfólkið ekki síður!
Verið er að dreifa blaðinu í hús í Grindavík í dag og á morgun en þeir sem geta ekki beðið geta skoðað rafrænt eintak af blaðinu hér að neðan: