1495. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 9. október 2018 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Sigurður Óli Þórleifsson, varaformaður, Páll Valur Björnsson, áheyrnarfulltrúi, Sævar Þór Birgisson, varamaður fyrir Helgu Dís Jakobsdóttur og Gunnar Már Gunnarsson, varamaður fyrir Hallfríði Hólmgrímsdóttur.
Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum.
1808002 Ráðningarmál: Sviðsstjórar.
Samþykkt samhljóða
Dagskrá:
1. Björgunarsveitin Þorbjörn: Nýr samstarfssamningur - 1512122
Fulltrúar björgunarsveitarinnar mættu á fundinn.
Björgunarsveitin hefur óskað eftir viðræðum um nýjan samning um ýmsa þjónustu og aðstoð sem sveitin hefur innt af hendi.
Bæjarráð tekur vel í erindið og mun Björgunarsveitin gera uppkast að nýjum samningi.
2. Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir - 1802069
Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, nýráðinn sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fráfarandi sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindisbréf byggingarnefndar grunnskóla lagt fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða erindisbréfið.
3. Leikskólahúsnæði; Aukning/stækkun - 1807010
Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, nýráðinn sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fráfarandi sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindisbréf byggingarnefndar leikskóla lagt fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða erindisbréfið.
4. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu - 1602104
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fór yfir stöðuna á framkvæmdinni við Gerðavelli 17. Ljóst er að framkvæmdin mun fara fram úr þeim kostnaðaráætlunum sem lagðar voru fram í upphafi.
5. Ísland ljóstengt: framkvæmd - 1712077
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir 35,5 mkr. viðauka vegna 5 km. vatnslagnar sem lögð yrði samhliða ljósleiðara.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 35,5 milljónir sem fjármagnaðar verði með ónýttri fjárheimild annarra framkvæmda.
6. Hundagerði - framkvæmd - 1810015
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka vegna hundagerðis upp á 4 mkr.
Bæjarráð vísar málinu til umræðu í gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
7. Byggingarfulltrúi: starfshlutfall - 1807005
Lögð fram tillaga að auglýsingu vegna byggingarfulltrúa fyrir Grindavíkurbæ.
Bæjarráð samþykkir auglýsinguna og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að auglýsa starfið.
8. Sala á útistofum: Hraunbraut 3a og útikennslustofa við Laut - 1808203
Lagt fram kauptilboð í útistofurnar að fjárhæð 3,6 milljónir.
Bæjarráð samþykkir tilboðið.
9. Uppsetning Hreystigarðs í Grindavík: Kostnaðaráætlun og staðsetning - 1808183
Frístunda- og menningarnefnd fór á fundi sínum, nr. 76 yfir samantekt sviðsstjóra. Nefndin er sammála um að staðsetning hreystigarðs sé óheppileg í Kúadal. Hreystigarður myndi nýtast betur nær íþróttasvæðinu. Nefndin fagnar hugmyndinni um hreystigarð sem er aðgengilegur öllum en sú útfærsla sem nefnd er í tillögunni er kostnaðarsöm og nefndin setur spurningarmerki við hvort tækin henti börnum jafnt sem fullorðnum.
Bæjarráð vísar málinu til umræðu í gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
10. Kútter Fríða RE13 - Viljayfirlýsing - 1810010
Frístunda- og menningarnefnd fór yfir erindi frá Ólafi Ragnari á fundi nr. 76. Erindinu vísað til bæjarráðs. Nefndin samþykkir að skrifað sé undir viljayfirlýsingu. Viljayfirlýsingin snýr að hýsingu á líkaninu og stingur nefndin uppá að líkanið gæti verið í opnu rými t.d. á bókasafninu eða á annarri hæð á Víkurbraut 62 fyrir framan afgreiðslu bæjarskrifstofu.
Bæjarráð samþykkir erindið að því gefnu að fyrir liggi full fjármögnun.
11. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi - 1810021
Lagt fram.
12. Forkaupsréttur vegna sölu á Sighvati GK 357 - 1810024
Bæjarráð samþykkir samhljóða að falla frá forkaupsrétti.
13. Ráðningarmál: Sviðsstjórar - 1808002
Lagt fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:50.